| idunnareplid.is | |||||
|
|||||
![]() |
***Jæja þá er ykkar einlæg orðin of ólétt til að standa í rekstrinum ein og leitum við því að áhugasömum meðeiganda að elsku elsku Iðunnareplinu okkar :) Nánari upplýsingar á idunnareplid@idunnareplid.is ****
ATH við minnum á bílastæðahúsið undir Ráðhúsinu! Vagnar eru velkomnir inn til okkar :)
á döfinni: SUNNUDAGA KL:10:00 Pabbamorgnar! Eftir miklar fyrirspurnir höfum við ákveðið að prufa að hafa pabbamorgna hér á sunnudagsmorgnum. Hlökkum til að hitta ykkur pabbana! ÞRIÐJUDAGA KL. 10:30 Stuðningshópur kvenna um brjóstagjöf. Stuðningskonur um brjóstagjöf hittast og spjalla, gefa ráð og reynslusögur. MIÐVIKUDAGA KL. 10:30 Mömmumorgnar. Að minnsta kosti einu sinni í mánuði munum við fá einhverja skemmtilega starfsemi til að koma á mömmumorgnanna og kynna sig. fyrir sumarfrí fengum við til dæmis Ungbarnanuddara, Tónagull, brjóstagjafaráðgjafa ofl áhugaverðar dömur. Hlökkum til vetrarins :) FÖSTUDAGA KL. 10:00 International Parents koma í heimsókn til okkar vikulega á föstudögum klukkan 10:00 -------------- International parents and their children meet every Friday at 10 in Iðunnareplið!!!!
Iðunnareplið er Ungbarnakaffihús í hjarta gamla miðbæjarins. Opið 9:00-19:00 alla daga. Hvað er yndislegra en að fá sé göngutúr með krílið og kíkja síðan inn í rjúkandi kaffi, kakó og með því í barnvænu umhverfi. Þar sem börn og foreldrar geta notið sín. Nú eða grípa með sér girnilegan Frappoccino eða Latte To Go. Við hliðina á Iðunnareplinu er sund sem er fullkomið fyrir vagnana, þar blæs ekki né rignir og gluggar meðfram því gefa foreldrum möguleikann á að fylgjast alltaf með vagninum.
Iðunnareplið sérhæfir sig í hollum og bragðgóðum mat fyrir alla fjölskylduna og því ekki að láta eftir sér að kíkja við í kvöldamat eftir langan dag og njóta samvista með fjölskyldunni á meðan starfsfólk Iðunnareplisins dekstrar við ykkur :) Við erum að byrja á því að prufa okkur áfram í góðgæti fyrir ofnæmispésa og erum komin með krakkamúffur án mjólkur auk þess að pönnukökurnar okkar eru bæði án eggja og mjólkur. Næst á dagskrá er að finna eitthvað gott gúmmelaði án eggja. Allar uppskriftir og ábendingar eru vel þegnar sjá matseðilinn hér
"Þetta er kaffihús fyrir börn, með tilliti til fullorðinna" -Faðir í heimsókn- Kveðja,
|
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Iðunnareplið. Templarasundi 3. Sími: 578 8484. Tinna: 848 6858 tinna@idunnareplid.is Iðunnareplið á Facebook |